fbpx
Menu

Nemendur

Drauma starfsnámið í skosku hálöndunum

Telma Dögg Björnsdóttir, nem­andi í Hand­verks­skól­anum, var stödd í skosku hálöndunum þar sem hún var í starfs­námi hjá Campbells’s of Beauly.

Erasmus+ veitir nemendum í starfsmenntaskólum og nemum á samningi tækifæri til að fara í náms- og þjálfunarferðir og starfsnám hjá fyrirtækjum, skólum, og stofnunum í Evrópu í 2 vikur til 12 mánuði.

 

Reynsla og einstakt tækifæri

„Ég ákvað að fara út fyrir þægindarammann og láta ekki staðsetningu starfsnámsins stjórna vali mínu, heldur var mitt markmið að fá sem mest út úr þessum tíma og það varð til þess að ég sótti um starfsnám hjá Campbells’s of Beauly.

Campbell’s of Beauly er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1858 og sérhæfir sig í breskum sveita og skotveiðifatnaði. Campbell’s sérsaumar fatnað fyrir um 130 Estates (veiðisetur) og hinn almenna viðskiptavin. Við vinnum mest með tweed ull sem veiðisetrin láta vefa sérstaklega með það í huga að blandast í nærliggjandi umhverfi og einnig vinnum við með tartan þá oft sérstök fjölskyldu tartan.

Lífið hérna í hálöndunum er mjög rólegt og eru lopapeysan og gönguskórnir mínar mest notuðu flíkur. Beauly er 1300 manna bær umkringdur sveitabæjum og fallegum skógum.

Ég er mjög heppin með vinnustað og eru því allir dagar skemmtilegir. Mér sem nema er treyst fyrir að sérsauma á viðskiptavini og ég fæ líka að vera með í mátunum og mælingum. Starfsnámið hefur nú þegar veitt mér mikla reynsla og einstök tækifæri eins og að hitta Karl Bretaprins þegar að hann kom og opnaði nýja klæðskera verkstæðið okkar.“

 

Tækniskólinn sækir árlega um Erasmus+ styrki til Rannís

Erasmus+ veitir nemendum í starfsmenntaskólum og nemum á samningi tækifæri til að fara í náms- og þjálfunarferðir og starfsnám hjá fyrirtækjum, skólum, og stofnunum í Evrópu í 2 vikur til 12 mánuði.  Námið / þjálfunin skal vera hluti af námi viðkomandi nemanda og metið sem slíkt að dvöl lokinni.

Verkefni frá nemendum

Starfsnám í húsgagnasmíði

Námssamningur í París

Til Danmerkur í Húsgagnabólstrun

Klára námið í Skive

Útskriftarverkefni

Útskriftarverkefni

Ferð til Frankfurt

Um jafnrétti fyrir alla