22. janúar – 14. mars 2024
Kennt er á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 17:30 til 22:00.
Alls 100 klukkutímar.
Leiðbeinandi er Gunnar Örn Sigurðsson gítarsmiður. Gunnar er gítarsmiður að mennt og lærði fagið á Íslandi, í Þýskalandi og í Svíþjóð. Margir af fremstu tónlistarmönnum landsins nota gítara frá Gunnari. Hann hefur kennt gítarsmíði hjá Tækniskólanum frá árinu 2000.
Námskeiðsgjald: 250.000 kr.
Innifalið: Allt tréefni
Þátttakendur velja sjálfir og kaupa hardware og pickup.
Námskeiðið er metið til sjö eininga.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Gjaldfært er af greiðslukortum viku áður en námskeið hefst.
Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólahringa fyrirvara (virkir dagar) á [email protected]
Skráningargjald er ekki ekki endurgreitt.
Gjaldskrá Endurmenntunarskólans
Eftir námskeiðið er ég hæfari til að smíða mína eigin gítara og viðhalda þeim sem ég á fyrir.
Þetta var alveg frábært námskeið og Gunnar mjög fær og góður kennari
Mjög skemmtilegt og gaman að spreyta sig á verkefninu.
Gríðarlega fræðandi námskeið um efnið (gítarsmíði).
Reyndur og góður kennari sem miðlaði vel af reynslu sinni.