Smáskipanámskeið – vélstjórn <15 m
Skráning opnar fimmtudaginn 4. september kl. 10:00.
Kortanúmer þarf að fylgja umsókninni svo hún sé fullgild.
Verklegar lotur – Skyldumæting
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja öðlast atvinnuskírteini til að starfa sem vélstjóri <750 kW á smáskipum allt að 15 m lengd í strandsiglingum (með að hámarki 12 farþegum og takmörkun á farsviði).
Til viðbótar þessu námi, til að fá útgefið skírteini, þarf viðkomandi að ljúka siglingatíma og viðurkenndu öryggisfræðslunámi. Námskeiðið er að mestu í fjarnámi en til að ljúka því þarf að mæta í verklega lotu og próf í Tækniskólanum á Háteigsvegi í Reykjavík.
Námskeiðsgjald
280.000 kr.
Location
Dagsetning
01. October 2025 - 10. March 2026