fbpx
Menu

Smáskipanámskeið – vélstjórn <15 m

Verklegar lotur – Skyldumæting

Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja öðlast atvinnuskírteini til að starfa sem vélstjóri <750 kW á smáskipum allt að 15 m lengd í strandsiglingum (með að hámarki 12 farþegum og takmörkun á farsviði).

Til viðbótar þessu námi, til að fá útgefið skírteini, þarf viðkomandi að ljúka siglingatíma og viðurkenndu öryggisfræðslunámi. Námskeiðið er að mestu í fjarnámi en til að ljúka því þarf að mæta í verklega lotu og próf í Tækniskólanum á Háteigsvegi í Reykjavík.

 

Smáskipanámskeið vélstjórn 15 m

Námskeiðsgjald

265.000 kr.

Dagsetning

18. September 2023 - 22. March 2024

Fyrirspurnir

[email protected]

Námskeiðslýsing

Smáskip - vélstjórn undir 15m

Náminu er skipt í nokkra námsþætti sem allir mynda eina heild til þessara réttinda, m.a. aðalvél, rafkerfi, önnur kerfi, viðhald og umhirða, bilanaleit og viðgerðir, öryggisbúnaður, vökva- og loftstýringar, hönnun skipa og stöðugleiki, sjóréttur.

Námskeiðið er í fjarnámi með tveimur staðbundnum lotum í verklegri þjálfun og skriflegum prófum. Skyldumæting er í staðlotur.

Smáskipanám (vélstjórn <15m) kemur í stað þess sem áður var 12m vélgæslunám. Atvinnuskírteini er gefið út að loknu öryggisfræðslu smábáta og skyndihjálparnámskeiði.

Nánari upplýsingar

Verklegar lotur eru tvær og er skyldumæting í þær báðar til að ljúka náminu.

Lota 1: 5. nóvember 2023

Lota 2: 9. – 10. mars 2024

Námskeiðið samsvarar 15 eininga námi í framhaldsskóla (um hálfri önn). Því má gera ráð fyrir að um 270-360 klst fari í námið samkvæmt viðmiði fyrir framhaldsskólanemendur (og eitthvað styttri fyrir eldri nemendur). Þar af eru rúmlega 20 klst (3 dagar) í verklegri þjálfun og prófi í viðhaldi, umhirðu, bilanaleit, viðgerðum og keyrslu vélbúnaðar í skipum.

 

Gjaldfært er af greiðslukortum viku áður en námskeið hefst.

Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólahringa fyrirvara (virkir dagar) á [email protected]

Skráningargjald fæst ekki endurgreitt.

Gjaldskrá Endurmenntunarskólans

Til að fá prófskírteini að loknu námskeiði þurfa þátttakendur að standast alla þætti námskeiðsins, hvort sem það eru bókleg próf eða verkleg þjálfun.

Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

Nemendur þurfa að útvega sér eftirfarandi gögn og m.a. hafa með sér í próf og verklega lotu:

  • Reiknivél, skriffæri og strokleður.
  • Fartölvu (eða spjaldtölvu) til að geta unnið á kennsluvef (Innu).

Sérhæfð námsgögn fást hjá IÐNÚ bókaútgáfu, Brautarholti 8, 105 Reykjavík.

Course

Related courses

Námskeið / 18. september 2023 - 30. apríl 2024

Smáskipanámskeið
– skipstjórn <15 m

Verklegar lotur – Skyldumæting Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja öðlast atvinnuskírteini til að starfa sem skipstjóri á smáskipum allt að 15 m lengd í strandsiglingum (með að hámarki 12 farþegum og takmörkun á farsviði). Til viðbótar þessu námi, til að fá útgefið skírteini, þarf viðkomandi að ljúka siglingatíma (þjálfun um borð í skipi) og viðurkenndu öryggisfræðslunámi. Námskeiðið er að mestu í fjarnámi en með þremur verklegum staðlotum og lýkur með prófum í Tækniskólanum á Háteigsvegi í Reykjavík (Sjómannaskólanum). Áfangalýsing námskeiðs:  ...

Námskeið / 8. apríl - 24. maí 2024

Smáskipanámskeið – vélstjórn 15-24 m viðbót

Smáskipanámskeið – vélstjórn 15-24 m Opnað verður fyrir skráningu miðvikudaginn 7. febrúar kl. 10:00. Verkleg staðlota – Skyldumæting Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja öðlast atvinnuskírteini til að starfa sem vélstjóri <750 kW á smáskipum allt að 24 m lengd í strandsiglingum. Til viðbótar þessu námi, til að fá útgefið skírteini, þarf viðkomandi að ljúka siglingatíma (þjálfun um borð í skipi) og viðurkenndu öryggisfræðslunámi. Námskeiðið er að mestu í fjarnámi en lýkur með verklegum þáttum og prófum í Tækniskólanum á Háteigsvegi í Reykjavík (Sjómannaskólanum). Áfangalýsing námskeiðs:  ...

FAQ

FAQ

Er hægt að fá eitthvað metið inn í smáskipanámið?

Hægt er að óska eftir því við Endurmenntunarskólann að fyrra nám í skipstjórn og/eða vélstjórn, eftir því sem við á, verði metið á móti einhverjum af þeim námsþáttum sem eru í smáskipanáminu. Þessi ósk verður að koma fram á umsókn (eða í síðasta lagi innan við viku eftir að námskeið hefst, og þá skriflega með tölvupósti).

Enginn kostnaður fylgir mati á fyrra námi en slíkt mat leiðir ekki til lækkunar á námskeiðsgjöldum.

Þarf ég að mæta í einhverja tíma í smáskipanáminu?

Námið er kennt í fjarnámi þannig að það er ekki mæting í skólann fyrr en það kemur að verklegum lotum og prófum. Það er skyldumæting í verklegar lotur.

Ég get ekki stundað námið fyrstu vikuna – er það í lagi?

Já, það er í lagi en samt sem áður þá verða þátttakendur að fara yfir allt námsefnið sem tilgreint er í dagskrá námskeiðsins.

Þarf ég að vera við tölvuna á ákveðnum tímum?

Nei, ekki í fjarnámshlutanum. Þátttakendur læra þegar þeim hentar – allt kennsluefni er klárt í upphafi námskeiðs.

Hvað þarf ég að verja miklum tíma í smáskipanámið?

Námskeiðið samsvarar 15 eininga námi í framhaldsskóla (um hálfri önn). Því má gera ráð fyrir að um 270-360 klst fari í námið samkvæmt viðmiði fyrir framhaldsskólanemendur (og eitthvað styttri fyrir eldri nemendur). Þar af eru um 20-30 klst í tengslum við verklegar lotur. Það er mjög mismunandi hvað þátttakendur þurfa langan tíma til að læra en það er komið undir hverjum og einum en við miðum við að þátttakendur komi vel þjálfaðir og undirbúnir í verklegar lotur og lokapróf. Það er nauðsynlegt fyrir þátttakendur að horfa á alla fyrirlestra á námskeiðinu og vinna öll verkefni.

Hvað af efninu inni á kennsluvefnum þarf ég að prenta út?

Það er ekki þörf á að prenta neitt út en það getur verið ágætt að hafa möguleika á að prenta út einhver verkefni og vinna þau á blaði.

Hvað þarf ég að hafa með mér í lokaprófin í smáskipanáminu?

Það er nauðsynlegt að hafa reiknivél, skriffæri og strokleður. Það er mjög gott að hafa með sér aukablý í skrúfblýantinn.

Hvaða gögn má hafa með sér í próf í smáskipanáminu?

Þetta er útskýrt á kennsluvef í sérhverjum námsþætti en í sumum tilvikum má ekki hafa neitt meðferðis en í öðrum tilvikum má hafa tiltekin gögn.

Hvernig eru prófin í smáskipanáminu?

Það prófað úr sérhverjum námsþætti bóklega námsins. Krafa er um tilteknar lágmarkseinkunnir í hverjum þætti. Í verklegum lotum er framkvæmt mat á þekkingu, leikni og hæfni þátttakenda í samræmi við hæfnikvarða.

Hvar get ég séð einkunnir hjá mér eftir námskeiðið?

Inni á kennsluvefnum getur þú séð einkunnir úr hverjum prófþætti. Þú ferð í áfangar og velur kennslugrein og þá getur þú séð einkunnir í þeim námsþætti.

Þarf ég siglingatíma til að fá að taka þátt í smáskipanámskeiði?

Nei, það er ekki krafa um að þátttakendur þurfi siglingatíma til að geta tekið þátt í smáskipanámskeiði.

Hvað þarf ég langan siglingatíma til að geta fengið útgefið atvinnuskírteini?

Til að fá atvinnuskírteini útgefið hjá Samgöngustofu þarftu að hafa náð 18 ára aldri og með 12 mánaða siglingatíma (hver dagur á sjó reiknast sem 1,5 dagur þannig að 8 mánaða siglingartími uppfyllir þau skilyrði).

Ég er búinn að vera á trillu í mörg ár en siglingatíminn var ekki lögskráður. Hvernig get ég fengið þann siglingatíma metinn?

Ef þú er með siglingatíma á trillur sem er ekki í lögskráningarkerfinu hjá Samgöngustofu þá getur þú lagt fram vottorð um sjóferðartíma til Samgöngustofu en sá tími þarf að vera vottaður af tveimur trúverðugum aðilum. Sjá nánar á vef Samgöngustofu.

Ég hef ekki náð að stunda námið vegna mikillar vinnu, veikinda eða mikilla anna. Get ég fengið að taka innilotuna og lokaprófið með næsta námskeiði?

Já, en greiða verður sérstaklega fyrir þá breytingu. Rétt er einnig að nefna að námskeiðsgjöld eru ekki endurgreidd í þessum tilvikum.

Hvernig sæki ég um smáskipaskírteini hjá Samgöngustofu?

Þegar þú sækir um smáskipaskírteini hjá Samgöngustofu þarft þú að skila inn til þeirra eftirfarandi gögnum: Bóklegt útskriftarskírteini frá Tækniskólanum – siglingatíma. Þú þarft einnig að skila inn læknisvottorði og passamynd. Nánari upplýsingar um þetta má sjá á heimasíðu Samgöngustofu.

Hvar gilda smáskiparéttindin sem Samgöngustofa gefur út?

Skipstjórnarréttindi á smáskip gilda við strandsiglingar (takmarkast af ROC hafsvæði). Í lögum er strandsigling skilgreind sem sigling innan 50 mílna frá strönd.

Hver er lágmarkseinkunn til að standast bókleg og verkleg próf?

Lágmarkseinkunn í prófum í smáskipanámi er 5 eða 6, mismunandi eftir námsþáttum.

Hver eru skilyrði skírteinisins á smáskip?

Að hafa náð 18 ára aldri, hafa staðist bókleg próf og að hafa lokið siglingatíma. Þú þarft að vera íslenskur ríkisborgari eða með heimilisfesti á Íslandi. Einnig vottorð læknis um sjón, heyrn og heilbrigði sjómanna, hafa lokið ROC fjarskiptanámskeiði , öryggisfræðslunámi smáskipa og viðurkenndu námskeiði í skyndihjálp.

Ég er ekki búinn að ná 18 ára aldri – get ég samt komið á smáskipanámskeið?

Já, en þú getur ekki sótt um skírteini hjá Samgöngustofu fyrr en þú hefur náð 18 ára aldri.

Hvaða bátar teljast smáskip?

Smáskip eru skip sem eru 15 metrar og styttri að skráningarlengd í strandsiglingum.

Hvaða vélstjórnarréttindi þarf á smáskip?

Það er ekki krafa um sérstök vélstjórnarréttindi á smáskip að 250 kW (335 hp) vélastærð, annars er gerð krafa um réttindi eða sérstakar heimildir.

Þarf ég að taka mér frí frá vinnu þegar ég fer í verklegu loturnar?

Já, það er skyldumæting í verklegu loturnar og þær ná yfir einn til þrjá daga. Nánari upplýsingar efnistök og dags/tímasetningar á lotum fá skráðir þátttakendur á námskeiðum.

Fæ ég námskeiðsgjöld endurgreidd ef ég kemst ekki á námskeiðið?

Já, en bara ef þú lætur okkur vita með a.m.k. þriggja daga fyrirvara (virkir dagar) í tölvupósti á [email protected]. Ef þú lætur okkur ekki vita með þessum fyrirvara eru námskeiðsgjöld ekki endurgreidd.

Questions

Send us a message, we will answer you as soon as possible!

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.