is
Menu

Setja upp Remote App

08. November 2024

Setja upp Remote App

Síðast uppfært: 8. Nóvember 2024

Þessar leiðbeiningar sýna þér hvernig á að setja upp Remote App á tölvuna þína. Remote Apps leyfa þér að tengjast og vinna í forritum gegnum internetið. Þetta er gagnlegt fyrir Mac notendur þar sem sum forrit eru eingöngu fyrir Windows.

───

Yfirlit:

  1. Skrá sig inn á VDI
  2. Sækja forrit
  3. Keyra forrit

1. Skrá sig inn á VDI

Byrjið á því að fara á VDI síðuna og skráið ykkur síðan inn með skólaaðganginum ykkar, sama aðgang og þið notið til að skrá ykkur inn í skólatölvur. Hér þarf að setja “2t\” fyrir framan notendanafnið ykkar. Ýtið síðan á “Sign in”.


2. Sækja forrit

Til að sækja forrit þá þurfið þið að ýta á tannhjólið efst í hægra horni, og ýta síðan á “Download the rdp file”. Eftir að gera það, þá getið þið valið einhver forrit í möppunum, til að sækja þau þá þurfið þið bara að smella á forritið sem þið hafið valið. Þið ættuð að sjá .rdp skrá hlaðast niður í tölvuna ykkar.

ATH: Einnig er hægt að keyra forritin í gegnum vafran með því að velja “Open resources in the browser”.

3. Keyra forrit

Tvísmelltu á .rdp skrána til að keyra forritið. Þessi gluggi ætti að birtast, hér ýtið þið á “Connect”.

Það mun síðan biðja ykkur um að skrá ykkur inn aftur með skólareikninginum ykkar, munið að setja “2t\” fyrir framan notendanafnið ykkar.

Að lokum þá mun forritið ræsast upp, þetta getur tekið smá tíma fyrsta skipti.