fbpx
is
Menu

Adobe

31. October 2019

Adobe – uppsetning á PC

ATH: Áður en uppsetning er hafin þarf að passa að það séu ekki eldri útgáfur af Adobe forritum á tölvunni þinni. Ef svo er þá þarftu að fjarlægja þau fyrst með því að fylgja leiðbeiningunum hér.

1. Náðu í Adobe uppsetningar forritið

Smelltu hér til að sækja tólin sem þú þarft til að setja upp Adobe.
Hérna þarftu að skrá þig inn með Tækniskóla aðganginum þínum.

Innskráning á Microsoft portal
ATH : Ef þú veist ekki tækniskóla aðganginn þinn þá skalt þú smella hér

Opnaðu “Adobe” skjalið og farðu svo í “PC”  og smelltu á “Download” takkan á “PC ADOBE.zip”.

Skref sem þarf að taka til að niðurhlaða Adobe fyrir pc

2. Afþjappaðu möppunni

Byrjaðu á því að afþjappa möppuna “PC ADOBE” og svo möppunni “PC_SELF_SERVICE” með því að hægri smella á skjalið og ýta á “Extract All”.

Hvernig á að afþjappa Adobe uppsetningar skjalið

3. Keyrðu uppsetninguna

Í “PC_SELF_SERVICE” möppunni þarf að fara í “Build” möppu og svo keyra “setup” forritið. Þegar að forritið spyr þig hvort þú viljir veita þessu forriti réttindi á tölvunni þinni skalt þú ýta á “Yes”.hvernig á að keyra Adobe uppsetningu

4. Skráðu þig inn í Adobe Creative Cloud

Þegar uppsetningin klárast opnaðu þá “Adobe Creative Cloud” forritið og í “email address” reitnum skrifarðu “tskoli.is” og smelltu á “Continue” takkann, þá mun nýtt innskráningar viðmót opnast þar sem þú þarft að skrá þig inn með Tækniskóla aðganginum þínum.
Hvernig á að skrá sig inn i Adobe

Innskráning á Microsoft portal

5. Setja upp Adobe forrit

Núna í  þessu viðmóti þú getur farið í “All Apps” og sótt öll þau Adobe forrit sem þú vilt hafa.

hvernig á að setja upp adobe forrit i creative cloud